- Um Vesturland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share
 

Sveitarfélögin

Það má segja að sveitarfélögin á Vesturlandi séu eins fjölbreytt og þau eru mörg. Mörg þeirra hafa um aldir vaxið með sjávarútvegi, önnur eru með áherslu á landbúnað en mörg byggja á skólastarfi og þjónustu ýmis konar.

Alls eru 10 sveitarfélög með meira en 50 íbúa. Akranes er þeirra stærst með rúmlega 6.000 íbúa á meðan Rif telur um 135 íbúa.

Flest sveitarfélögin liggja við sjávarsíðuna en þó eru ýmsir þéttbýliskjarnar  í sveitum og þeirra stærstir Hvanneyri og Bifröst sem hafa byggst í kring um öflugt skólastarf.

Öll sveitarfélögin bjóða öfluga afþreyingu fyrir ferðalanga og góða þjónustu sem nýta má sér til að gera gott ferðalag enn betra.

 
 










Akranes
Bifröst

Borgarnes

Búðardalur






Stærsta sveitarfélagið og fyrrum eitt öflugasta sjávarpláss landsins. Þar má finna í dag eina dýrmætustu safnaperlu Íslendinga, Safnasvæðið.
 
Háskólaþorpið Bifröst er á einum fallegasta stað Vesturlands þar sem náttúruperlurnar eru við hvert fótmál.

Í Borgarnesi má finna söguna við hvert fótmál auk þess sem þar er eitt öflugasta þjónustu- og verslunarsvæði landshlutans.

Búðardalur er staðsettur við Hvammsfjörð innan Breiðafjarðar og í grenndinni eru margir af þekktustu sögustöðum landsins.
   











Grundarfjörður
Hellissandur & Rif
Hvanneyri
Ólafsvík







Grundarfjörður er vel staðsettur til ferðalaga um Snæfellsnes. Í grennd þessa fallega sjávarpláss eru óteljandi útivistarmöguleikar ekki síst Kirkjufell, eitt fegursta fjall landsins.

Það segja margir að Snæfellsjökull sé hvergi fegurri á að líta en frá Hellissandi og Rifi. Bæirnir liggja rétt við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og henta því vel ferðalöngum hans.

Eitt helsta menntasetur landsins í gegn um aldirnar og hefur menntað margan bóndann. Þar má finna eina Landbúnaðarsafn landsins svo ekki sé talað um sveitafitnessið.

Það sem flestir ferðalangar sjá þegar komið er til Ólafsvíkur er einn fallegasti foss Vesturlands en í bænum má svo sannarlega finna fleira sem vert er að staldra við.











Stykkishólmur
















Það er sérstakur andi í Stykkishólmi sem má kannski þakka öllum þeim gömlu húsum sem þar má finna og gleðja ferðalanga. Ekki síður gleður það stórkostlega útsýn yfir Breiðafjörð sem þar má finna.







Get Adobe Flash player